Home

Advertisement

Customize

Je

« previous entry | next entry »
Jan. 13th, 2008 | 11:10 am
mood: tired tired
music: Electric Wizard - Priestess Of Mars

Mig dreymdi hressan draum í nótt. Helblindi (black metal bandið sem ég var í) var að fara að spila í TÞM. Við ætluðum að taka eitt lag, The War Of Hate. Meðan við vorum að gera okkur ready voru Svartidauði að spila. Ég spurði Samúel, sem spilaði á gítar, hvort hann kynni textann ennþá (þar sem við sungum báðir) og hann sagði nei, og sagðist í raun ekki muna hvernig lagið sjálft var. Ég mundi það ekki heldur og spurði því Benna, sem var seinasti bassaleikarinn, hvort hann kynni lagið og hann sagðist ekki kunna það. Ég spurði Benna hvort við ættum að reyna að spila improvised drone og ætlaði að fara að spyrja Samúel hvort hann gæti gert eitthvað feedback dæmi á gítarinn og reynt að dróna, en þá vaknaði ég.

Þurfti að vakna snemma í dag. Það er verið að fara að selja íbúðina sem ég bý í og það kemur einhver kona að skoða klukkan 13. Ætlaði að vera rosa sniðugur í gærkvöldi og fara snemma að sofa. Var sofnaður fyrir 20 held ég, en vaknaði milli 22 og 23. Gat ekkert sofnað aftur fyrr en um 6 í morgun. Húrra fyrir mér. Stillti vekjarann á 12 í staðinn fyrir 11 og ætlaði að njóta þess að reyna að sofa smá, þó svo að 5-6 tímar sé engan veginn nóg fyrir mig. Ég þarf mína 8 tíma. En nei, ekki tókst mér að sofa til hádegis. Vaknaði rétt fyrir 11. Rosa stuð.

Annars er ég alltaf, eins og kannski sum ykkar vita, alltaf í einhverjum tónlistarlegum pælingum. Við sem vorum í Helblindi erum búnir að vera að pæla í að byrja aftur. Sama line-up og var þegar við hættum: Ég að öskra, Samúel að syngja og spila á gítar, Jóhann á gítar, Benni á bassa og Tumi að tromma. Svo erum við Benni að reyna að starta drone bandi. Ég ætla að spila á gormatrommu og gong, hann á bassa, Sibba verður kannski líka á bassa og svo verður gaur sem við þekkjum ekkert, að nafni Ívar, á gítar. Ég veit bara að hann er með góðan tónlistarsmekk og að hann spilar eitthvað aðeins á gítar. Hann segist ekki vera neitt góður, en þeir segja það allir og eru síðan bara nokkuð fínir. Æfingin skapar líka meistarann. Ég held að draumurinn minn tákni að ég ætti að reyna að setja fullan kraft í þessi project.

Svo langar mig líka rosalega að búa til tónlist fyrir annað project sem ég er með. Dynvargur. Dark ambient/noise/experimental project. Langar að fá einn gaur sem málar til að taka þátt í þessu með mér. Það myndi þá vera þannig að við myndum halda smá sýningu. Hann sýnir málverkin sín, sem eru gerð eftir norrænu goðafræðinni, og undir verður tónlist sem ég bý til, og textarnir í því verða úr gömlum norrænum fræðum. Ég er nú þegar búinn að gera lag fyrir Þrymskviðu, en á eftir að taka upp "sönginn". Ég held að þetta gæti komið skemmtilega út ef þetta er tæklað rétt.

Annars er voðalega lítið að frétta af mér. Ég er þessa dagana á námskeiði hjá Hlutverkasetri. Það felur í sér atvinnulega endurhæfingu. Það gerir mér kleyft að takast á við mín vandamál, reyna að ná bara í þunglyndinu og geta farið aftur á vinnumarkaðinn. Mér finnst þetta hjálpa mér svolítið að vera hressari. Svo er þetta líka gott upp á að skapa sér einhverja rútínu. Ég er alltaf mættur þarna klukkan 9 á morgnana, þriðjudaga til fimmtudaga, og þetta er búið um 13. Svo skilst mér að ég geti sinnt einhverjum verkefnum fyrir þau eftir námskeiðið sjálft, þannig að það er ekkert verið að reyna að setja mann í eitthvað program í 6 vikur og svo er manni hent aftur á atvinnumarkaðinn, enda myndi það sennilega ekkert virka fyrir okkur sem erum í þessum hóp. Hlutverkasetur býður einnig upp á tölvunámskeið sem er frá 9-10 eða 11 á mánudagsmorgnum. Það hentar mér vel því að mig langar að læra meira á tölvur fyrst ég sit fyrir framan mína meirihluta dagsins, meirihluta vikunnar. Við erum ekki nema 2-3 á því námskeiði þannig að gaurinn sem sér um það kennir okkur í raun bara það sem við viljum, svo lengi sem hann kann það. Ég ákvað að reyna að læra smá í HTML og hann getur kennt mér það, enda minnir mig að hann sé vefhönnuður. Er að vinna í heimasíðu fyrir Dynvarg og hún er komin vel á veg. Þarf í rauninni bara að klára að setja dót inn á hana og laga útlitið aðeins. Er svolítið stopp núna því ég veit ekki alveg hvað ég á að setja meira á síðuna. Veit bara að mig vantar fleiri myndir af mér fyrir hana (Sibba eða Alda, redda mér?). Þarf síðan að finna út hvernig ég get sett þetta upp eins og blogg síðu svo ég geti sett in regluleg update af því sem er að gerast með þetta. Þetta verður hresst, já.

Link | Leave a comment | Add to Memories | Tell a Friend

Comments {5}

Supervillain Sibba

(no subject)

from: [info]dvergabondi
date: Jan. 15th, 2008 03:30 am (UTC)
Link

Ég á einhverjar myndir.
Og mig langar að taka fleiri.

Reply | Thread

myrkarna

(no subject)

from: [info]myrkarna
date: Jan. 15th, 2008 08:38 am (UTC)
Link

Vantar einhverjar roooosalegar. Held að flestar sem þú ert með séu gamlar.

Reply | Parent | Thread

Supervillain Sibba

(no subject)

from: [info]dvergabondi
date: Jan. 15th, 2008 10:04 am (UTC)
Link

Nei, þær voru allar á flakkaranum.
Og mig langar að taka fleiri.
Afþví ég hef ekki tekið myndir í einhverja mánuði.

Reply | Parent | Thread

myrkarna

(no subject)

from: [info]myrkarna
date: Jan. 15th, 2008 10:16 am (UTC)
Link

Ég er með einhverjar smá hugmyndir um hvað mig langar að gera þannig að þetta gæti orðið gaman.

Reply | Parent | Thread

Supervillain Sibba

(no subject)

from: [info]dvergabondi
date: Jan. 15th, 2008 11:04 am (UTC)
Link

Jeij!

Reply | Parent | Thread