(no subject)
« previous entry | next entry »
Jun. 28th, 2007 | 04:46 am
location: Heima
mood:
Calm like a bomb!
music: My Dying Bride - And I Walk With Them
Alveg er ég viss um að einhver er að velta fyrir sér hvers vegna í ósköpunum ég er með bloggsíðu. Ég nota þessi ógurlegheit svo gríðarlega sjaldan. En ég ætla samt að þröngva einhverju rausi upp á ykkur fyrst ég er byrjaður á annað borð.
Helgina fyrir einni og hálfri viku (15.-17. júní) fórum við Sibba norður í sitt hvoru lagi og hittumst á Akureyri. Þar hittum við Alla og fórum við eftir einhverja verslunarleiðangra og vesen út að Leyningshólum, sem eru einhverstaðar innar í Eyjafyrði en Akureyri. Sirka 50-60 km frá Akureyri, myndi ég giska á. Ég er ekki frá því að þetta sé fallegasti staður sem ég hef nokkurn tíman komið á! Þarna tjölduðum við og höfðum það bara kósý. Um kvöldið ákváðum við að grilla einhvern mat, man nú ekki alveg nákvæmlega hvað það var, enda skiptir það eigi máli. Þegar við vorum búin að borða komu Jói, Fríða og Heiðbert, sem er sonur Jóa, í "heimsókn" í skóginn til okkar. Höfðu þau með sér mat og einnota grill og fengu sér að borða. Þarna var spjallað fram eftir kvöldi og leikið sér. Ég eyddi miklum tíma og enn meiri orku í að leika við Heiðbert og fíflast í honum. Alli kveikti meðal annars á bílnum sínum og græjunum og setti lagið Puritania með Dimmu Borgum á og þá ákvað ég að kenna Heiðberti að slamma. Það gekk mjög vel!
Þegar við höfðum leikið okkur nóg var kominn tími á að gestirnir færu að koma sér heim, enda var klukkan orðin margt og Heiðbert þurfti að fara að sofa og Jói að vinna daginn eftir.
Á laugardeginum vöknuðum við Sibba einhverntíman í kringum hádegi, en Alli hafði vaknað áður. Skömmu seinna var ákveðið að skreppa til Jóa og Fríðu og fá að misnota salernisaðstöðuna þeirra, enda var "klósettið" á Leyningshólum frekar ógeðslegt. Fyrst að við vorum komin svona langt var ákveðið að halda áfram inn á Akureyri, versla eitthvað til að borða yfir daginn og um kvöldið. Fórum stuttu eftir það aftur að Leyningshólum og nutum kyrrðarinnar þar. Jói og Fríða komu einhverntíman um kvöldið og við grilluðum saman og átum. Eftir það var kveiktur varðeldur og sumir fengu sér aðeins að drekka. Það var vaknað í kring um hádegi á sunnudeginum og byrjað að taka saman dótið sem við vorum með og ganga frá því. Þegar allir voru tilbúnir og búnir að ganga frá lögðum við af stað. Jói og Fríða fórum heim til sín, en ég, Alli og Sibba fórum inn á Akureyri, fengum okkur sjoppufæði og brunuðum af stað til Reykjavíkur. Alli var svo góður að skutla okkur gegn pening fyrir bensíni. Svo fór Alli aftur norður á mánudeginum 18. júní.
Sibba var hjá mér frá því við komum suður og þar til í gær. Við gerðum ekki mikið hérna fyrir sunnan, enda svosem ekki mikið að gera hérna. Við hittum vinkonu hennar sem var nýlega komin frá Bretlandi og nutum veðurblíðunnar. Svo fór hún heim til sín í gær.
Eftir að Sibba var farin ákváðum við Alli að skreppa út og dunda okkur eitthvað. Skruppum í kringluna svo að alli gæti keypt sér wifebeater (hvítan hlýrabol eins og rednecks eru alltaf í) og fórum svo í Smáralindina til að fíflast aðeins. Ákváðum svo að fara að fá okkur að borða á T.G.I. Friday's, en þar sem verðið þar er greinilega ákveðið af fégráðugu fólki sem dreymir um að eiga allan auð þjóðarinnar var niðurstaða okkar feitu mannanna að fara á Pítuna því við vissum að þar væri eðlilegra verð. Komum við hjá Öldu og drógum hana með okkur að éta. Eftir kvöldverðinn rúntuðum við í Hafnarfjörð þar sem alli þreif bílinn sinn aðeins. Síðan fórum við í Öskjuhlíð og röltum þar um í leit að loftvarnarbyrgi. Eftir langan tíma og of mikla hreyfingu fundum við loksins byrgi. Þar tók Alda mjög svo kynþokkafullar og ógurlegar myndir af okkur Alla. Eftir það röltum við að bílnum og rúntuðum aðeins meira. Alda fór að tala um þreytu um 10 leytið og henni var því skutlað heim. Síðan komum við Alli hingað heim og erum búnir að vera hangandi á netinu síðan. Mjög hresst allt saman.
Annars ákvað ég það í gærkvöldi (semsagt áðan) að fara að reka á eftir pabba að senda mér hjólið mitt og kaupa mér handlóð eftir mánaðarmót. Ekki það að ég sé að fara í einhverja ógurlega megrun. Ætla bara að reyna að styrkja mig aðeins og losa mig við nokkur kíló og breyta hinum í vöðva í leiðinni.
Jæja, ég held að ég láti þessa ritgerð duga í bili. Skal reyna að vera duglegri að blogga.