Fréttir af mér..
« previous entry | next entry »
Apr. 22nd, 2007 | 11:02 pm
mood:
depressed
Þessa stundina er ég hjá Stjána vini mínum. Var búinn að vera 3 nætur hjá Andrési. Fór áðan og skoðaði einhverja stúdíóíbúð í Breiðholti. Mér leist vel á hana og sagði fólkinu sem á hana það. Þau tóku niður númerið mitt og sögðust ætla að hafa samband á morgun. Þau sögðu mér reyndar líka að það væri fullt af fólki búið að skoða. Og það kom einhver stelpa að skoða þegar ég var að fara. Vona bara að ég verði heppinn. Mér finnst ég alveg eiga það skilið.
Mamma ákvað að vera í góðu skapi í gærkvöldi og lánaði mér 1500 kall. Á ca 600-700 kall eftir. Og get lítið eytt því vegna þess að ég þarf að nota það í strætó til að komast í viðtöl og á æfingu. Þurfum að æfa duglega vegna þess að við erum að spila í Hinu Húsinu næstkomandi laugardag. Mér er samt skapi næst að eyða öllum peningnum í einhvern mat eða eitthvað. Er geeeðveikt svangur. Er líka bara búinn að borða 2 pylsur í allan dag.
Búinn að vera að rifja upp of mikið af leiðinlegum hlutum í kvöld. Held ég þurfi alvarlega að finna mér eitthvað að gera og fá mat til að losna við pirringinn (sem stafar aðallega af hungri) og finna mér eitthvað að gera. Verst að ég get ekkert farið héðan því að ég gisti hérna í nótt.

(no subject)
from: anonymous
date: Apr. 24th, 2007 11:50 am (UTC)
Link
Reply | Thread
(no subject)
from:
myrkarna
date: Apr. 24th, 2007 01:48 pm (UTC)
Link
Reply | Parent | Thread