Home

Advertisement

Customize

(no subject)

« previous entry | next entry »
Feb. 27th, 2007 | 12:59 pm
location: Akureyri
music: Sunn O))) & Boris - Etna

Akureyri er kalt! Búinn að vera hérna síðan á föstudaginn og held ég sé að verða veikur. Er allavega búinn að vera að hósta eins og brjálæðingur síðan í gær og það er frekar vont. Kenni þeirri staðreynd að ég er ekki búinn að vera klæddur almennilegur, skórnir mínir eru götóttir og þar af leiðandi fer snjór inn í skóna og fæturnir á mér blotna og ég er búinn að reykja frekar mikið seinustu daga. Reykja meira og þá lagast þetta!

Annars er lítið að frétta af mér. Er alltaf bara í viðtölum hjá kúkú læknum. Það er fínt. Er líka búinn að vera nokkuð hress upp á síðkastið, fyrir utan það smáatriði að ég get ekki drullast til að ákveða hvað ég vill gera með suma hluti varðandi líf mitt.

Er lítið búinn að gera hérna á Akureyri. Aðallega rúnta með Alla, Jóni og Sísí. Hitti reyndar Nonna og Gunni í gær og tók smá rúnt með þeim. Það var ágætt :D

Mér leiðist.

Link | Leave a comment | Add to Memories | Tell a Friend

Comments {2}

(no subject)

from: anonymous
date: Feb. 28th, 2007 12:14 pm (UTC)
Link

"ég er ekki búinn að vera klæddur almennilegur"

Gott þetta. :P

*Knús* Ég hlakka svo mikið til að fá þig afftuuuurrr!!

Reply | Thread

(no subject)

from: anonymous
date: Feb. 28th, 2007 12:15 pm (UTC)
Link

Og ÉG ELSKAÐIG!

Reply | Thread